Starfsemi og stefna
Fríhöfnin ehf. er einkahlutafélag í 100% eigu Isavia ohf. Isavia er opinbert hlutafélag sem annast meðal annars rekstur, viðhald og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, þ.m.t. rekstur verslana með tollfrjálsar vörur á flugvallarsvæðinu. Fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í móðurfélaginu, Isavia. Fríhöfnin er hluti af samstæðu Isavia.