Hvað er betra en einn Miracle Complexion Sponge? Tveir!! Nú er þessi vinsæli förðunarsvampur fáanlegur í 2-pack!
Glæsilegur förðunarsvampur sem gerir yfirborð húðarinnar fullkomið. Þessi glæsilegi svampur blandar fallega förðunarvörum á húðinni og gefur henni fullkomna áferð.
Svampinn má nota rakan til að fá fallega ljómandi húð eða þurran til að fá fullkomna þétta áferð og mikla þekju.
Svampinn má nota í allar tegundir förðunarvara en hann er sérstaklega góður í fljótandi eða kremkenndar förðunarvörur.
Svampinn er hægt að nota í primer, farða, hyljara, púður, contouring, highlighting, kinnalit svo eitthvað sé nefnt.
Til að tryggja það að förðunin sé fullkomin skiptið um svamp á 1-3 mánaðafresti.