Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

Jólasett frá Sol de Janeiro

Deila
Jólasett frá Sol de Janeiro

Í ár fáum við þrjú glæsileg jólasett frá Sol de Janeiro. Cheirosa Perfume Mist Set, Rio Body Retreat og Rio Shower Ritual.

Cheriosa Perfume Mist Set: Settið inniheldur fjögur ilmsprey. 

  1. FY24_CheirosaMists_3_SET_2000_SephoraNA.jpg
    Cheriosa Perfume Mist Set

    Cheirosa 62: Hefur verið vinsælasti  ilmurinn í safninu. Hann er hlýr og sætur með tónum af pistasíuhnetum, möndlum og saltaðri karamellu. Hann er fullkominn fyrir þá sem elska sæta lykt en ilmurinn minnir á suðrænt frí.

  2. Cheirosa 68: Léttur og frískandi ilmur með blómlegum og ávaxtalegum tónum. Ilmurinn er með jasmín, drekaávöxt, og vanillu. S-Skemmtileg samsetning af ilm sem sameinast í framandi og leikandi ilm. Ilmurinn er ljómandi og skemmtilegur ilmur sem fangar orku brasilískra stranda.
  3. Cheirosa 40: Þessi ilmur er dýpri því hann er með tóna af svörtum plómum, crème de cassis, og heitum vanilluviði. Hann hefur fágaðan blæ og er fullkominn fyrir kvöldstundir eða sérstök tilefni.
  4. Cheirosa 59: Nýlegur ilmur frá Sol de Janeiro og gefur hann frá sér hlýja tóna af kókoshnetukremi, ristuðu pralíni, og örlitlum hitabeltisblómum. Hann er fágaður og orkugefandi með tónum sem minna á ferskleika sjávarins og hlýju sólarinnar. 

Rio Shower Ritual: Fullkomið sturtusett frá Sol de Janeiro. Settið inniheldur vörur sem eru innblásnar af hitabeltisströndum Brasilíu, sérstaklega Rio de Janeiro, og næra húðina og skilja eftir frískandi ilm. Rio Shower Ritual settið inniheldur:

FY24_HOL_RioShowerRitual_PPAGE_5_SUSTAINABILITY_2000_NoText_TextFree.jpg
Rio Shower Ritual
  • Brazilian Play Body Wash:  Er rakagefandi sturtugel er framleitt með innihaldsefnum eins og Cupuaçu-smjöri, sem er ríkt af andoxunarefnum, auk kókosvatns og açaí, sem sér um að næra og mýkja húðina. Það hreinsar húðina án þess að þurrka hana, og skilur eftir sig ómótstæðilegan ilm sem minnir á sólskin og sjó.
  • Brazilian Bum Bum Cream: Er frægasta varan frá Sol de Janeiro og er heimsþekkt. Bum Bum kremið er stútfullt af guaraná-extrakti, sem er ríkt af koffíni og hjálpar til við að auka teygjanleika húðarinnar. Það gerir húðina mýkri og skilur eftir sig   hlýjan sætan ilm af pistasíuhnetum og saltaðri karamellu.
  • Brazilian Bum Bum Scrub: er lúxuslíkamsskrúbbur sem er hannaður til að mýkja og endurnýja húðina. Hann er innblásinn af frægu Brazilian Bum Bum Cream og inniheldur sömu ilmandi tóna af pistasíuhnetum, karamellu og vanillu. Skrúbburinn er gerður úr salt-, sykur- og kókosolíuögnum sem fjarlægja dauðar húðfrumur, en inniheldur einnig guaraná sem er ríkt af koffíni til að styrkja og stinna húðina. Eftir notkun er húðin silkimjúk, endurnærð og með ljómandi áferð.
  • Bum Bum Body Firmeza oil: er nærandi líkamsolía sem styrkir og eykur mýkt húðarinnar. Hún inniheldur Guaraná, sem er ríkt af koffíni og þekkt fyrir að stinna húðina, ásamt því að djúpnæra hana. Olían veitir húðinni ljóma og hjálpar til við að auka sléttleika, ásamt því að gefa frá sér dásamlegan ilm af pistasíuhnetum og vanillu, innblásinn af Brazilian Bum Bum Cream. Hentar vel til daglegrar notkunar fyrir mjúka og glansandi húð.

Rio Body Retreat: Þrjár vinsælar vörur með Cheirosa 62 ilminu. Settið inniheldur:

FY24_RioBodyRetreat_3_SET_600_BlushBar.jpg
Rio Body Retreat
  • Brazilian Bum Bum: Þetta fræga líkamskrem er hannað til að styrkja og stinna húðina. Í því er guaraná, sem er ríkt af koffíni, og cupuaçu-smjöri, sem veitir djúpann raka og skilar mjúkri og glansandi húð.
  • Brazilian Play Moisturizing Shower Cream-Gel (90 ml): Rakagefandi líkamssápa sem skilur húðina eftir mjúka.
  • Cheirosa 62 Perfume Mist (90 ml): Vinsælasti ilmurinn frá Sol de Janeiro hann er hlýr og sætur með tónum af pistasíuhnetum, möndlum og saltaðri karamellu.