Annað
2024-10-18
Kylie Jenner hefur nýlega gefið út nýja ilmvatnið sitt, Cosmic Eau de Parfum, sem endurspeglar draumailminn hennar. Ilmurinn er einstök blanda af blóma-, sítrus- og jarðtónum. Hann opnast með ferskum tónum af stjörnu-jasmínu og blóðappelsínu, en í miðjunni koma fram dýpri tónar af gylltum amber og rauðum peoníum. Ilmurinn klárast með hlýjum og djúpum grunntónum af vanillu og sedrusviði, sem búa til dáleiðandi og hreinan ilm sem hentar bæði fyrir daginn og kvöldið.
Cosmic ilmurinn er fáanlegur hjá okkur bæði í brottfarar- og komuverlsun í 10 ml, 30 ml og 50 ml. Hann er einnig fáanlegur í 150 ml áfyllingu. hægt er að fylla á ilmvatnið með einföldum hætti.
Ilmvatnsglasið er gullfagllegt og er hannað til að líkjast listaverki frá öðrum heimi, og ilmurinn sjálfur er sagður endurspegla þetta "geimlega" útlit með sínum einstöku tónum og lögum. Það gerir Cosmic að fullkomnum valkosti fyrir þá sem vilja fá stílhreinan og eftirminnilegan ilm.