Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

Bioeffect gjafasett

Deila
Bioeffect gjafasett

Settin frá BIOEFFECT eru þrjú:

EGF Firming Favorites

EGF Firming Favorites gjafasettið inniheldur þrjár af þeirra vinsælustu vörum: EGF Serum, EGF Eye Serum og Imprinting Eye Mask. EGF Serum, margverðlaunuðu húðdroparnir auka raka, draga úr ásýnd fínna lína, hrukka og þétta húðina. EGF Eye Serum er endurnærandi augnserum sem vinnur á fínum línum og hrukkum auk þess að draga úr þrota í kringum augun. Imprinting Eye Mask er sérstaklega þróaður til að efla og hámarka áhrif EGF Eye Serum.

firming favorites.png
EGF Firming Favorites

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

EGF Face & Hand Rejuvenation

EGF Face & Hand Rejuvenation gjafasettið inniheldur vinsælu EGF húðdropana og EGF Hand Serum. Öflugar og virkar húðvörur sem hægja á öldrun húðar og veita ótvíræðan árangur. Þeirra byltingarkennda og margverðlaunaða EGF Serum er sérstaklega þróað til að fyrirbyggja og vinna á öldrun húðar, auka rakabindingu og skilur við húðina þétta og slétta. EGF Hand Serum hjálpar til við að næra þurrar og sprungnar hendur, efla ysta varnarlag húðarinnar og draga úr ásýnd litabreytinga.

face and hand.png
EGF Face & Hand Rejuvenation

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

EGF Power Performance

EGF Power Performance gjafasettið inniheldur tvær öflugar og kraftmiklar húðvörur, EGF Power Serum og EGF Power Cream. Vörurnar eru sérstaklega þróaðar fyrir þroskaða húð og til að hægja á öldrun húðarinnar. EGF Power Serum er sérstaklega þróað til að jafna húðlit og vinna á hrukkum, litamisfellum og þurrki. EGF Power Cream er byltingarkennt andlitskrem sem vinnur á fimm helstu öldrunarmerkjum húðar; hrukkum, húðþynningu, litamisfellum, slappri húð og þurrki, ásamt því að auka þéttleika og jafna áferð. Þessi kraftmikla tvenna veitir sýnilegan árangur.

Power performance.png
EGF Power Performance